Vatíkanið við Sameinuðu þjóðirnar: Hagið ykkur nú skynsamlega og hættið fólksfækkunaræðinu
NEW YORK, 6. apríl 2006 (LifeSiteNews.com) - Celestino Migliore, fulltrúi Benedikts páfa XVI hjá Sameinuðu þjóðunum, ávarpaði 39. þing Nefndarinnar um fólksfjöldaþróun í fyrradag og gagnrýndi harðlega afstöðu Sameinuðu þjóðanna til að hafa stjórn á fólksfjölgun.
Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar um stjórn á mannfjölgun sem koma frá Mannfjölgunarsjóði Sameinuðu þjóðanna með öllum sínum áróðri fyrir fóstureyðingum, berst viðvörun frá annarri stofnun Sameinuðu þjóðanna, Íbúaþróunarnefndinni, sem varað hefur við því árum saman að fólksfjöldafækkun væri miklu meira vandamál en fólksfjölgun.
Allt frá árinu 1999 (http://www.lifesite.net/ldn/1999/jun/99063003.html )
hefur Íbúaþróunarnefnd Sameinuðu
þjóðanna varað við hinni vaxandi hættu
á of mikilli fólskfjöldafækkun og
hækkandi meðalaldri sem rekja má til of lágs
frjósemisstuðuls og hefur afar alvarlegar afleiðingar
í för fyrir sér hvað áhrærir
samfélagslegt öryggi og
heilbrigðisþjónustu.
Árið 2002 efndu Sameinuðu þjóðirnar til
ráðstefnu sérfræðinga um fækkandi
íbúafjölda. “Í áratugi hafa
sérfræðingar gengið út frá
því að frjósemisstuðullinn í
þróunarlöndum ná jafnvægi, eða um 2
börn á hverja konu og nema hér staðar. Hins
vegar hefur komið í ljós að á
undanförnum áratug hafa sífellt fleiri
þróunarlönd orðið að horfast í
augu við sama vandamálið og
þróunarlöndin og séð
frjósemistuðul sinn fara undir lágmark
endurnýjunar. Þannig má draga í efa að
um einhvers konar lögmál sé að ræða
sem leiði til fólksfjöldajafnvægis,” mátti
lesa í einu sérfræðiálitinu: (http://www.lifesite.net/ldn/2002/mar/02030602.html)
Árið 2003 (http://www.lifesite.net/ldn/2003/feb/03020402.html ), og að nýju 2005 (http://www.lifesite.net/ldn/2005/jan/05012710.html ) sendi Íbúaþróunarnefnd Sameinuðu þjóðanna frá sér svipaðar viðvaranir um of mikla fólksfækkun,
Erkibiskupinn endurtók þessi viðvörunarorð þegar hann ávarpaði leiðtoga heimsins: “Sökum lágrar frjósemi má rekja þrjá fjórðu af fólksfjölguninni til nýbúa í þróunarlöndunum og árið 2030 grundvallast öll fólksfjölgun á nýbúum í þessum löndum.” Hann bætti síðan við: “Slíkar breytingar á íbúasamsetningu í slíkum mæli munn vissulega hafa róttækar afleiðingar í för með sér hvað áhrærir allt alþjóðasamfélagið.”
Boðskapur erkibiskupsins í heild:
http://www.holyseemission.org/05April2006.html
Greinin birtist upphaflega á heimasíðu kirkju.net.
Fleiri greinar eftir Jón Rafn Jóhannsson
