Heilög Gianna Beretta Molla
Heilög Gianna,
Biddu fyrir okkur!
María mey frá Guadalupe
María mey frá Guadalupe
Biddu fyrir okkur!


Fóstureyðingar

-----------------------------------------------------------------------------------------------

Eitt af fáum málum sem frjálshyggjumenn eru ekki sammála um er hvort
banna eigi fóstureyðingar.

Frjálshyggjumenn trúa því  að allir eigi að fá að gera það sem þeir
vilja svo framarlega sem þeir skaði ekki aðra og að þá reglu megi
einungis brjóta til að vernda hana.

Í þessari ágætu setningu eru því miður nokkur skilgreiningarvandamál.

Hvað er átt við með að skaða?
Er í lagi að strjúkast upp við einhvern í strætó, gefa ókunnugum
olnbogaskot eða hreyta í aðra fúkyrðum?

Hverjir eru þessir aðrir sem maður má ekki skaða?
Á að taka dýr inn í skilgreiningunni á öðrum. Hvað með ófædd börn?

Þó fæstir viðurkenni það eru hugtökin skilgreind eftir hentisemi
hverju sinni. T.a.m. hentar það illa að taka aðrar dýrategundir inn í
skilgreininguna því kjöt er svo gott á bragðið. Að sama skapi er sterk
hefð nú fyrir því í vestrænum samfélögum að konur fái að deyða ófædd
börn sín. Því finnst flestum óþægilegt að hugsa um fóstur sem
fullveðja einstaklinga.

Til að réttlæta þá siði sem menn hafa alist upp við ráðast þeir í
tæknilega umræðu um hvenær fóstur verður að einstaklingi.

Greinarhöfundur er á þeirri skoðun að barn verði til við getnað.
Fjölmargir telja sig hins vegar komast hjá því að vera ósamkvæmir
sjálfum sér með því að halda því fram að barnið verði til (og fái
réttindi) þegar mænan eða heilinn verður til. Getur verið að sú
röksemdafærsla sé valin því tímasetning hentar betur? Hægt er að nefna
fjölmargar aðrar tímasetningar sem einnig eru mikilvægar og mögulegt
væri að hengja réttindi til lífs við með samsvarandi rökum. T.a.m.
þegar líkami barna getur fundið sársauka, við sjálfa fæðinguna, þegar
börnin eru vanin af brjósti, þegar þau byrja að tjá sig eða skríða
o.s.frv.

Fylgendur fóstureyðinga færa sumir þau rök fyrir máli sínu að barnið
geti ekki lifað sjálfstæðu lífi án móðurinnar. Því eigi umræðan að
snúast um yfirráðarétt konunnar yfir líkama sínum. Greinarhöfundi
finnst þau rök ekki vega þungt þar sem hið sama mætti segja um
ungabarn sem mundi vitaskuld látast án umönnunar foreldris.

En það væri erfitt að  banna þennan sið. Samkvæmt opinberum tölum er
þriðja hvert barn á Íslandi og helmingur grænlenskra barna drepin
fyrir fæðingu. Nú til dags eru ungar konur aldar upp við að
fóstureyðing sé eðlileg getnaðarvörn sem sé allt í lagi að beita ef
tímasetningin hentar ekki til barneigna.

Ljóst er að ef fóstureyðingar yrðu bannaðar á Íslandi færu þungaðar
konur erlendis í aðgerð eða það sem verra er yrðu aðgerðirnar líklega
framkvæmdar í bílskúrum af ófaglærðu fólki með skítugum tækjum og
hættulegum lyfjum.

Því er líklega farsælast að leggja höfuðáherslu á að höfða til
siðgæðis samferðafólks okkar með yfirveguðum umræðum og kennslu.


© Lýður Þór Þorgeirsson 1998.
Uppfært árið 2011 að beiðni höfundar “til að lagfæra unggæðingslegt orðalag”.


Fleiri greinar