Sjö stólpar sannleikans eftir fóstureyðingu
“Mig langar nú að beina orðum mínum sérstaklega til þeirra kvenna sem farið hafa í fóstureyðingu. Kirkjan gerir sér grein fyrir þeim fjölmörgu samverkandi þáttum sem lágu þessari ákvörðun að baki. Það sem gerðist var og verður skelfilegt ódæði.
En gefist ekki vonleysinu á vald og glatið ekki voninni. Faðir miskunnsemdanna er reiðubúinn að fyrirgefa ykkur og veita ykkur frið í skriftasakramentinum.” Jóhannes Páll páfi II, Guðspjall lífsins.
Fyrsti stólpinn
Guð
sagði: “Þú skalt ekki mann deyða.” Fimmta
boðorðið. Jesús sagði: “Sannleikurinn mun
gjöra yður frjálsa” (Jh 8. 32).
Annar stólpinn
Sannleikurinn er sá að fóstureyðing er synd.
Þriðji stólpinn
Þú óhlýðnaðist Guði og deyddir barn þitt.
Fjórði stólpinn
En Guð elskar þig! Hann er miskunnsamur og vill fyrirgefa
þér, veita þér frelsi og frið. Barnið
þitt biður fyrir þér og þráir
þetta einnig þér til handa.
Fimmti stólpinn
Þú verður að gera játningu
þína frammi fyrir Guði (best af öllu fyrir
milligöngu prests, rabbía eða vinar) að
þú hafir syndgað. Segðu að þú
harmir þetta og biddu Guð um að fyrirgefa
þér og gefðu honum heit um að gera þetta
aldrei aftur. [1]
Sjötti stólpinn
Þetta verður þú líka að biðja
barnið þitt um að gera. Gefðu honum eða henni
nafn. Segðu honum eða henni að þú takir
það afar nærri þér að hafa verið
völd að dauða hans eða hennar. Biddu barnið
fyrirgefningar og biddu um að barnið þitt hafi frelsast
og búi að eilífu með Guði.
Sjöundi stólpinn
Taktu á móti fyrirgefningu Guðs og barnsins og
trúðu þessu og á lækningu
þína. Fyrgefðu nú sjálfri
þér. Sannleikurinn hefur gert þig frjálsa.
[1]. Hvað varðar konur í Þjóðkirkjunni bendi ég þeim á viðtalstíma presta. Þeir munu fúslega biðja með ykkur og létta byrðinni af hjartanu. Prestar tilgreina yfirleitt viðtalstíma í Símaskránni.
Jón Rafn Jóhannsson
Greinin birtist upphaflega á heimasíðu kirkju.net.
Fleiri greinar eftir Jón Rafn Jóhannsson
