Breskum stúlkum allt niður í tólf ára aldur afhent neyðargetnaðarvarnapillan
LONDON, 10. apríl 2006 (LifeSiteNews.com) – Daily Mail greinir frá því að stúlkum allt niður í tólf ára aldur verði afhent neyðargetnaðarvarnarpillan í lyfjaverslunum um allt land án vitundar foreldranna. Neyðargetnaðarvarnarpillan (sem á ensku er nefnd MAP: the Morning After Pill) kom fyrst á markað árið 2002 til notkunar fyrir fullorðna.
Notkun
neyðargetnaðarvarnapillunar hefur verið keppikefli
fjölmargra alþjóðlegra samtaka um
fólksfjöldafækkun á s. l. fimm árum og
sú viðleitni að hafa þetta lyf aðgengilegt
fyrir stúlkur hefur borið árangur í flestum
vestrænum löndum. Í Bretlandi hefur gætt
lítillar andstöðu og jafnvel hafa leiðtogar
kaþólsku kirkjunnar verið þögulir um
málið.
Snemma í marsmánuði tilkynnti Cybercast News Service
að breska ríkisstjórnin hyggðist lækka
verð neyðargetnaðarvarnarpillunnar umtalsvert. Gordon Brown
fjármálaráðherra hyggst lækka
söluskattinn á pillunni.
Vinsældir neyðargetnaðarvarnarpillunnar eru samofnar
sívaxandi þungun ókvæntra
táningsstúlkna. Sívaxandi og umfangsmikil
barátta fyrir “kynfræðslu” og almennri
útbreiðslu getnaðarvarna hefur orðið þess
valdandi, að fjöldi þungana táningsstúlkna
er hæstur í Bretlandi í samanburði við
önnur lönd í Vesturevrópu.
Norman Wells, framkvæmdastjóri Family Education Trust –sem
er óháð rannsóknarstofnun – svaraði
fyrirhugaðri stefnu stjórnvalda um að lækka
verðið á neyðargetnaðarvarnarpillunni svo,
að viðleitni stjórnvalda bæri meiri árangur
ef þau legðu áherslu á að
táningsstúlkur forðuðust kynmök.
“Rætur vandans,” sagði Wells, “felast ekki í verði
getnaðarvarna, heldur í þeirri staðreynd að
við höfum aðskilið kynmök frá sínum
rétta vettvangi, það er að segja
ævilöngu trúnaðarsambandi karls og konu í
hjónabandi.”
Greinin birtist upphaflega á heimasíðu kirkju.net.
Fleiri greinar eftir Jón Rafn Jóhannsson
