Um Lífsvernd
Félagið var stofnað í apríl 2004 í safnaðarheimili Maríukirkju í Breiðholti af nokkrum kaþólskum áhugamönnnum um lífsvernd. Það er von okkar sem stöndum að félaginu, að sem flestir verði 'Pro Life' og að þeir sem eru 'Pro Life', gangi í félagið og gerist virkir í þessari baráttu. Sú barátta er ekki endilega hávær, en eitthvað sem við getum gert á hverjum degi. Í fyrsta lagi að biðja lífsverndarbænarinnar daglega. Í öðru lagi að láta aðra vita að við séum 'Pro Life', til dæmis vinnufélaga okkar og vini. Spyrja þá hvort þeir hafi áhuga á að ganga í 'Pro Life' félag. Í þriðja lagi að koma á bænastundirnar og taka þátt í því sem félagið er að reyna að gera með félagsmönnum.Hugsjón okkar
Við trúum að ófædd börn hafi ófrávíkjanlegan rétt til lífs frá getnaði og að alls engar kringumstæður réttlæti beina fóstureyðingu.Það eru alls engar kringumstæður sem geta réttlætt fóstureyðingu. Lífið er heilagt, án undantekninga. Það er einfaldlega alltaf rangt að deyða ófædd börn, óháð aðstæðum móðurinnar. Við getum haft samúð með móðurinni ef aðstæður hennar eru ekki góðar, en verðum að reyna að leysa vanda hennar og jafnframt þyrma lífi barnsins sem er byrjað að vaxa og dafna. Líf hefst við getnað. Það er ekki á valdi neins að ákveða eftir aldri, stærð, þyngd eða neinu öðru, hvenær manneskja er manneskja. Við verðum að virða ófrávíkjanlegan rétt barnsins til lífs, frá getnaði.
Hvað gerum við?
María Priscilla Zanoria (s: 897-5391) rekur, á eigin
heimili,
athvarf fyrir þungaðar konur í neyð og
kallar það Kærleiksheimilið.
"Dýrmætir Fætur" barmmerkið
Barmmerkið
er raunstærð og raunlögun fóta 10 vikna
fósturs og er alþjóðlegt merki
lífsverndarfólks. Það gefur góða
hugmynd um hvernig ófædd börn líta út
10 vikna gömul. Þessi merki eru fáanleg hjá
okkur. Þau er einnig hægt að panta beint frá
framleiðanda þeirra: http://www.hh76.com
Bæn um stöðvun fóstureyðinga
Himneski Faðir!
Við biðjum fyrir þeim ófæddu börnum sem með fóstureyðingu er ætlað að láta líf sitt í þessari viku. Bjarga þeim frá dauða.
Breyttu viðhorfum foreldranna og gefðu þeim nýja von, svo að ekki komi til þessa örvæntingarfulla verknaðar.
Teldu hughvarf þeim sem framkvæma fóstureyðingar. Kenndu okkur hvernig bregðast skuli við þessum blóðsúthellingum meðal okkar.
Þess biðjum við fyrir son þinn Jesú Krist. Amen.
Mánaðarleg bænastund
Fyrsta mánudeg hvers mánaðar er bænastund fyrir
ófæddum börnum í Maríukirkju við
Raufarsel, sem er kaþólsk kirkja. Messa er lesin kl 18.30
og henni lýkur kl. 19.00. Þá hefst bænastund
fyrir ófædd börn með útstillingu
altarissakramentisins. Henni lýkur kl 20
Kærleiksheimilið
María Priscilla Zanoria (s: 897-5391) rekur, á eigin
heimili, athvarf fyrir þungaðar konur í neyð og
kallar það Kærleiksheimilið.
Að gerast félagi í Lífsvernd
Allir eru velkomnir í félagið, kaþólskir
og aðrir, sem eru sammála stefnu félagsins, og
sérstaklega þeirri grundvallarhugsjón að alls
engar kringumstæður réttlæti beina
fóstureyðingu. Þeir sem vilja gerast félagar
í Lífsvernd eða fá barmmerkið
"Dýrmætir Fætur" geta haft samband við
Magnús Inga Sigmundsson í síma 586-1211,
séra Denis O'Leary í síma 557-7420, eða fyllt
út form hér.
Félagar fá sendar tilkynningar í tölvupósti um það sem er á döfinni. Hver félagi sem bætist við styrkir félagið. Því fjölmennara sem félagið er, því öflugra er það og líklegra til árangurs.

